Námskeið og ráðgjöf
Hjá Skrefinu finnur þú námskeið, hreyfingu og ráðgjöf sem hjálpar þér að taka næsta skref í átt að betri heilsu.
Heilsa á raunhæfan hátt
Heilsa getur þýtt ólíka hluti eftir því hvar við erum stödd.
Stundum langar okkur einfaldlega að hreyfa okkur meira, verða sterkari, fá meiri orku og koma góðum venjum í rútínu.
Stundum er staðan flóknari og við þurfum faglega ráðgjöf og skýrari leiðsögn til að finna út hver næstu skref.
Hér finnur þú hvort tveggja, námskeið og heilsueflingu fyrir þig sem vilt fjárfesta í eigin heilsu, ásamt sérhæfðri ráðgjöf þegar þörf er á meiri aðstoð.
Ég hjálpa fólki að taka raunhæf skref í átt að betri heilsu.
Ég hef starfað sem sjúkraþjálfari í 19 ár og hef á þeim tíma hjálpað fólki við mjög ólíkar aðstæður, allt frá því að byggja upp styrk og betri venjur yfir í flóknari heilsuvanda.
Nálgunin mín byggir á faglegri þekkingu, áralangri reynslu og persónulegri innsýn í hvað það getur tekið að byggja heilsuna upp aftur.
Hjá Skrefinu býð ég upp á námskeið, heilsueflingu og einstaklingsráðgjöf, með áherslu á raunhæfar leiðir sem hægt er að yfirfæra á daglegt líf.
Ég er menntaður sjúkraþjálfari, með diploma í Functional Medicine og sérhæfingu á sviði umhverfistengdra veikinda.
Hvar vilt þú byrja?
Fagleg leiðsögn fyrir þína heilsu
◦ Einstaklingsmiðuð ráðgjöf byggð á þínum markmiðum og þörfum
◦ Heildræn sýn á hreyfingu, næringu, svefn, streitu og daglegar venjur
◦ Sérhæfð ráðgjöf við flóknari heilsuvanda
◦ Skýr og raunhæf næstu skref sem þú getur nýtt í daglegu lífi
Veldu þá leið sem hentar þér best
@skrefid_med_lindu
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum